Fótbolti

Ekki viss að Mourinho hafi bætt Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Andres Iniesta, miðjumaður Barcelona, er eitthvað orðinn þreyttur á hólinu í kringum José Mourinho og öllu tali um hversu mikið hann hafi bætt liðið.

Iniesta efast nefnilega um að Mourinho hafi bætt lið Real svo mikið.

"Mourinho? Real Madrid veitti okkur keppni allt til enda í fyrra og ég veit ekki hvort hann hafi nokkuð bætt liðið," sagði Iniesta sem hefur heldur enga trú á því að Barcelona selji Lionel Messi til Inter.

"Það er erfitt að yfirgefa Barcelona og sérstaklega ef maður er alinn upp hjá félaginu. Messi er sérstakur leikmaður og ég sé það ekki gerast að hann fari."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×