Fótbolti

Ronaldo: Rooney er ánægður hjá United

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Ronaldo hefur ekki trú á því að Rooney vilji fara frá United.
Ronaldo hefur ekki trú á því að Rooney vilji fara frá United.

Stórstjarna Real Madrid, Cristiano Ronaldo, hefur látið hafa eftir sér að hann myndi elska að sjá Fabio Capello, landsliðsþjálfara Englendinga, aftur í Spænska boltanum.

Ronaldo talar einnig um að honum þyki ólíklegt að fyrrum liðsfélagi hans Wayne Rooney komi til Real Madrid líkt og orðrómur hefur verið um.

„Ég er enn vinur Rooney, Rio Ferdinand og Nemanja Vidic hjá United," sagði Ronaldo við News of the world.

„Ég held að Rooney sé mjög ánægður hjá Manchester United. Þó svo að Real Madrid reyni að kaupa hann, þá er ég nokkuð viss um að hann vilji ekki koma hingað til spánar og spila með mér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×