Körfubolti

NBA-deildin: Níundi sigurleikur Cleveland í röð

Ómar Þorgeirsson skrifar
LeBron James.
LeBron James. Nordic photos/AFP

Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt þar sem hæst bar 105-89 sigur Cleveland Cavaliers gegn LA Lakers-bönunum í Memphis Grizzlies en þetta var níundi sigurleikur Cleveland í röð.

LeBron James stjórnaði sýningunni að vanda hjá Cleveland en hann skoraði 22 stig en átti jafnframt hvorki fleiri né færri en 15 stoðsendingar.

Shaquille O'Neal átti einnig fínan leik en hann skoraði 13 stig og reif niður 13 fráköst á 21 mínútu.

Úrslitin í nótt:

Cleveland-Memphis 105-89

Indiana-Toronto 130-115

Orlando-Milwaukee 99-82

New Jersey-Detroit 93-97

Chicago-LA Clippers 82-90

Oklahoma City-Atlanta 106-99

Houston-Golden State 119-97







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×