Fótbolti

Góður útisigur hjá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi fagnar marki sínu í gær.
Messi fagnar marki sínu í gær.

Leikmenn Barcelona sýndu allar sínar bestu hliðar er liðið sótti Valladolid heim í gærkvöldi og landaði flottum 0-3 sigri.

Xavi, Daniel Alves og Lionel Messi sáu um að skora mörk Börsunga í leiknum.

Barcelona er komið með átta stiga forskot á toppi deildarinnar en hefur reyndar leikið einum leik meira en Real Madrid.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×