Körfubolti

Iverson líklega hættur aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Endurkomu Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers virðist vera lokið. Samkvæmt heimildum Sports Illustrated er Iverson hættur hjá félaginu til þess að vera hjá dóttur sinni.

Forráðamenn Philadelphia segjast hafa fullan skilning á því að Iverson skuli vilja vera hjá fjölskyldu sinni á þessum erfiðu tímum.

Ekki hefur verið opinberlega greint frá því hvað sé að plaga dóttur Iverson en það er augljóslega eitthvað alvarlegt.

Iverson var með 13,9 stig og 4,1 stoðsendingu að meðaltali í þeim 25 leikjum sem hann lék með Sixers í vetur.

 

 



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×