Fótbolti

Töfratvenna frá Cristiano Ronaldo í kvöld - myndir og myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo sýndi mikil tilþrif í kvöld.
Cristiano Ronaldo sýndi mikil tilþrif í kvöld. Mynd/AFP

Cristiano Ronaldo og Gonzalo Higuain skoruðu báðir tvö mörk á fyrstu 36 mínútunum í 4-2 útisigri Real Madrid á Getafe í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Real Madrid náði þar með Barcelona að stigum en Börsungar náðu þriggja stiga forskoti með 2- sigri á Osasuna í gær.

Bæði mörk Cristiano Ronaldo voru hrein snilld. Það fyrra skoraði hann á 13. mínútu með þráðbeinni aukaspyrnu upp í skeytin frá vítateigslínunni og það síðara skoraði hann á 37. mínútu með stórglæsilegu skoti eftir danstakta á hægri vængnum.



Það er hægt að sjá mörkin hans Cristiano Ronaldo í kvöld með því að smella hér (mark 1) og hér (mark 2) en það verður enginn ósvikinn af því að sjá þennan snilling sýna skottækni sína.

Ljósmyndarar AFP-myndaþjónustunnar náði nokkrum góðum myndum af Ronaldo í kvöld og það má sjá myndirnar í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.



Mynd/AFP
Mynd/AFP
Mynd/AFP
Mynd/AFP
Mynd/AFP
Mynd/AFP
Mynd/AFP
Mynd/AFP
Mynd/AFP
Mynd/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×