Fótbolti

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk á síðustu átta mínútunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Mynd/Nordic Photos/Getty

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid á síðustu átta mínútunum og sá til þess að liðið vann 3-1 sigur á Hércules í kvöld og hélt toppsætinu í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Real Madrid lenti 0-1 snemma leiks en Hércules vann óvæntan 2-0 sigur á Barcelona á dögunum.

David Trezeguet kom Hércules í 1-0 með glæsilegu skallamarki strax á 3. mínútu leiksins þegar hann skallaði fyrirgjöf frá hægri í boga yfir Iker Casillas í marki Real Madrid.

Ángel Di María jafnaði leikinn eftir aðeins sjö mínútna leik í seinni hálfleik þegar hann fylgdi vel á eftir þegar skot Cristiano Ronaldo var varið.

Karim Benzema kom inn á sem varamaður fyrir Pepe á 76. mínútu og átti góða innkomu í leikinn. Cristiano Ronaldo kom Real í 2-0 á 82. mínútu og innsiglaði síðan sigurinn fjórum mínútum síðar eftir sendingu frá Karim Benzema.

Cristiano Ronaldo er þar með búinn að skora 11 mörk i fyrstu 9 umferðunum í spænsku úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×