Fótbolti

Kaká er til sölu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kaká í brasilíska búningnum.
Kaká í brasilíska búningnum.

Brasilíumaðurinn Kaká á ekki neina framtíð hjá Real Madrid því félagið er til í að selja hann í janúar. Inter hefur lengi sýnt áhuga á leikmanninum og Real hvetur félagið til þess að gera tilboð í leikmanninn.

"Ef við fáum stórt tilboð í hann í janúar þá fær hann að fara," sagði Jorge Valdano, framkvæmdastjóri Real.

Kaká hefur verið lengi meiddur og Inter mun væntanlega vilja skoða ástand hans ítarlega áður en félagið gerir bindandi boð í leikmanninn.

Þó svo Real sé til í að missa Kaká mun félagið væntanlega ekki hlusta á tilboð undir 50 milljónum evra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×