Fótbolti

Lippi orðaður við stjórastöðuna hjá AC Milan

Ómar Þorgeirsson skrifar
Marcello Lippi.
Marcello Lippi. Nordic photos/AFP

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að landsliðsþjáflarinn Marcello Lippi hjá Ítalíu sé líklegur til þess að taka við stjórastöðunni hjá AC Milan næsta sumar.

Leonardo, núverandi knattspyrnustjóri AC Milan, hefur átt undir högg að sækja síðan hann tók við starfinu en AC Milan er nú í þriðja sæti ítölsku deildarinnar og stendur í ströngu í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 2-3 tap gegn Manchester United í fyrri leik liðanna í vikunni.

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Lippi muni líklega taka við AC Milan eftir HM næsta sumar en það eina sem gæti hugsanlega bjargað starfi Leonardo sé ef að félagið vinni Meistaradeildina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×