Innlent

Vegagerð fyrir tugi milljarða í sjónmáli

Kristján Möller stýrir viðræðunum.,
Kristján Möller stýrir viðræðunum.,

Mjög hefur dregið saman með kröfum ríkisins og lífeyrissjóðanna um vexti í viðræðum um fjármögnun sjóðanna á vegaframkvæmdum fyrir á fjórða tug milljarða króna.

Formlegar viðræður hafa staðið frá því í júlí. Talsvert er um liðið síðan aðilar náðu saman um allar meginforsendur og í nokkurn tíma hafa viðræðurnar einskorðast við vexti. Viðræðunefndirnar funda í dag.

„Það er eðlilegt að mikið hafi borið í milli en menn hafa verið að þétta netið og töluvert hefur áunnist," segir Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða.

Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, sem stýrir viðræðunum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, tekur í sama streng. Að hans sögn fékk verkefnið byr undir báða vængi í síðustu viku.

„Það er engin launung á því að við biðum eftir síðustu vaxtaákvörðun og funduðum ekki í tvær vikur fram að henni. Ákvörðunin varð svo til þess að liðka fyrir málum." Seðlabankinn lækkaði vexti um 0,75 prósentustig á miðvikudag sem varð til þess að samkomulag náðist við lífeyrissjóðina um vaxtakjör á lánum til framkvæmdanna.

Heildarkostnaður er metinn rúmir 30 milljarðar króna og rúmir 38 milljarðar með virðisaukaskatti.

Samhliða viðræðum um fjármögnun hefur Vegagerðin unnið að undirbúningi þriggja afmarkaðra verka. Áætlanir miða að því að hægt verði að leita eftir verktökum stuttu eftir að samningar um verkefnið í heild hafa náðst. Þá verði hægt að efna til útboðs vegna tveggja kafla á Suðurlandsvegi og forvals vegna Vaðlaheiðarganga.

Gangi allt eftir geta framkvæmdir hafist snemma á næsta ári og er reiknað með að þeim ljúki um mitt ár 2015. Hyggst ríkið endurgreiða lífeyrissjóðunum lánið, sem ekki nýtur ríkisábyrgðar, með innheimtu veggjalda. - bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×