Innlent

Mótmæli gegn niðurskurði

Ísafjörður Borgargfundur verður haldinn í Íþróttahúsinu í kvöld.
Ísafjörður Borgargfundur verður haldinn í Íþróttahúsinu í kvöld.

Fyrirhugaður niðurskurður í heilbrigðismálum kemur ver við sum svæði en önnur og hefur verið boðað til tveggja borgarafunda til að mótmæla þeim hugmyndum.

Gert er ráð fyrir um 40 prósenta niðurskurði bæði hjá sjúkrahúsþjónustu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og hyggjast íbúar svæðanna sem um ræðir hittast og koma mótmælum á framfæri.

Fundað verður í Íþróttahöllinni á Húsavík klukkan 17 og í íþróttahúsinu á Ísafirði klukkan 21 í kvöld. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×