Körfubolti

Rússneskur vodkaframleiðandi aðalstyrktaraðili New Jersey Nets

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Devin Harris leikur með New Jersey Nets.
Devin Harris leikur með New Jersey Nets. Mynd/AP
Rússnesku áhrifin eru orðin mikil hjá NBA-körfuboltaliðinu New Jersey Nets í Bandaríkjunum. Það er ekki nóg með að Rússinn Mikhail Prokhorov sé búinn að eignast félagið heldur verður aðalstyrktaraðili félagsins rússneskur vodkaframleiðandi.

Framleiðendur Stolichnaya eða Stoli vodka hafa gert fimm ára samning við New Jersey Nets og nýju íþróttahöllina, Barclays Center, sem er í byggingu í Brooklyn en þangað flytur New Jersey-liðið árið 2012.

Rússneski vodkaframleiðandinn mun meðal annars bjóða upp á sex bari í nýju höllinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×