Körfubolti

Artest yfirspenntur og svaf yfir sig

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Ron Artest fagnar sigri með liðsfélögum sínum gegn Phoenix.
Ron Artest fagnar sigri með liðsfélögum sínum gegn Phoenix. Mynd/AP
Ron Artest var svo spenntur eftir sigurkörfuna sína gegn Phoenix Suns í fyrrinótt að hann svaf yfir sig daginn eftir og kom of seint á æfingu. Tímasetning Artest gegn Phoenix á lokasekúndunni var fullkomin en tímasetningin á æfingu daginn eftir var ekki jafn góð. Hann mætti hálftíma of seint á æfingu hjá Lakers. Artest var sektaður fyrir vikið en ekki hefr verið greint frá því hversu há sektin er. Hann mætti einnig of seint á æfingu í byrjun maí þegar hann gleymdi að láta vita að hann var í jarðaför. "Ron hefur lag á að klúðra litlum hlutum," sagði Phil Jackson þjálfari. Artest ku hafa lesið vitlaust á töfluna með æfingatímanum og sofið út.
NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×