Fótbolti

Affelay spenntur fyrir Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Hollendingurinn Ibrahim Affelay, leikmaður PSV Eindhoven, er spenntur fyrir því að ganga til liðs við Barcelona á Spáni.

Affelay, sem verður samningslaus í sumar, segist þó ekkert hafa rætt við félagið. „Það eina sem ég veit er það sem ég les í blöðunum. Ég veit ekki hvað gerist í framtíðinni enda standa mér margir kostir til boða," sagði Affelay við spænska fjölmiðla.

„Það eina sem ég get gert er að halda áfram að æfa og spila eins vel og ég get með mínu félagi, sem er enn PSV."

Hann á von á því að hann muni skipta um félag í janúar næstkomandi. „Ég held að það væri betra fyrir félagið að selja mig í janúar til að fá einhvern pening fyrir mig. En það gæti þó verið betra að bíða þar til í júní enda er markmið liðsins að vinna meistaratitilinn og spila svo í Meistaradeildinni á næstu leiktíð."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×