Körfubolti

Iverson byrjar í Stjörnuleiknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Allen Iverson.
Allen Iverson.

Allen Iverson verður í byrjunarliði í Stjörnuleiknum. Hann er enn vinsæll og stuðningsmenn kusu hann í liðið þó svo hann hafi aðeins leikið 19 leiki og aldrei verið lélegri.

Steve Nash og Tim Duncan komust báðir í byrjunarlið á lokasprettinum. Nash skreið fram úr Tracy McGrady en Duncan hafði betur í baráttunni gegn Dirk Nowitzki.

LeBron James fékk þó flest atkvæða allra í kjörinu og hann er fyrsti leikmaðurinn sem fær yfir 2,5 milljónir atkvæða í þrígang.

Með James og Iverson í liði Austurstrandarinnar verða Dwayne Wade, Dwight Howard og Kevin Garnett.

Í liði Vesturstrandarinnar eru Kobe Bryant, Amare Stoudamire, Carmelo Anthony, Nash og Duncan.

 







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×