Körfubolti

Melo til NY Knicks?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Flest bendir til þess að Carmelo Anthony sé á förum frá Denver Nuggets en hann hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið.

Talið er að leikmaðurinn vilji helst fara til New York Knicks en hann ku vera heitur fyrir fleiri möguleikum.

New Jersey Nets og Houston Rockets eru sögð vera félög sem Melo er spenntur fyrir.

Það er pattstaða í málinu sem stendur en afar líklegt er að Anthony verði kominn til nýs félags áður en tímabilið hefst í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×