Skoðun

Framþróun í þjónustu við börn

Árni Páll Árnason skrifar um styrki til að efla þjónustu við langveik og ofvirk börn.

Í desember 2009 var efnt til átaks til að efla þjónustu við langveik börn og börn sem greind hafa verið með ofvirkni og athyglisbrest (ADHD) og fjölskyldur þeirra. Markmið samningsins er að þróa bætta og samþætta þjónustu við börnin í heimabyggð.

Átakið byggist á aðgerðaáætlun í þágu barna og ungmenna sem Jóhanna Sigurðardóttir þáverandi félagsmálaráðherra hafði forgöngu um og var samþykkt á Alþingi árið 2007. Í henni er m.a. lögð áhersla á að auka samhæfingu og efla samstarf þeirra sem sinna þjónustu við langveik börn og börn með geðraskanir og þroskafrávik. Að átakinu standa félags- og tryggingamálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og sveitarfélögin í landinu.

Langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest og foreldrar þeirra þurfa á fjölbreyttri þjónustu að halda. Oft hefur þó verið óljóst hver ber ábyrgð á að veita og greiða fyrir slíka þjónustu. Er það skólakerfið, stoðkerfi félagsmála, heilbrigðiskerfið eða sveitarfélögin? Er aðstoð við ofvirkt barn í námi félagslegt úrræði eða menntaúrræði?

Með átakinu er áhersla lögð á að tryggja þjónustu í samræmi við þarfir barnanna og fjölskyldna þeirra, óháð því hvar þjónustan er flokkuð í stjórnkerfinu. Áherslan er á börnin sem þarfnast þjónustunnar, en ekki á hlutverk hvers ráðuneytis um sig. Ráðuneytin þrjú leggja öll fé til þessa verkefnis í sameiginlegan sjóð. Í honum bíða nú 80 milljónir króna úthlutunar. Sveitarfélög geta sótt um fé úr þessum sjóði til tiltekinna verkefna, sem þau skipuleggja og sinna.

Nú er einstakt tækifæri til framþróunar í þjónustu við þessi börn. Mikilvægt er að sveitarfélög nýti þetta tækifæri og þrói metnaðarfull verkefni, í samvinnu við þau hagsmunasamtök foreldra sem sinnt hafa hagsmunagæslu fyrir börnin um langt skeið.

Verkefnisstjórn sem í sitja fulltrúar ráðuneyta og sveitarfélaga, undir forystu félags- og tryggingamálaráðuneytisins, annast umsýslu verkefnisins. Auglýst var eftir styrkumsóknum frá sveitarfélögunum í desember síðastliðnum og rennur umsóknarfresturinn út 27. janúar. Félags- og tryggingamálaráðuneytið veitir allar upplýsingar um verkefnið og forsendur fyrir styrkjum og eins eru aðgengilegar upplýsingar á heimasíðu þess: http://www.felagsmalaraduneyti.is/.

Höfundur er félags- og tryggingamálaráðherra.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×