Fótbolti

Hef aldrei tapað fyrir Messi í Playstation

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Argentínumaðurinn Javier Pastore er eftirsóttur af mörgum félögum og verður ekki mikið lengur hjá ítalska liðinu Palermo ef að líkum lætur.

Hann er meðal annars sterklega orðaður við Barcelona. Þó svo hann sé spenntur fyrir því að spila með Messi er hann ekki á því að drífa sig þangað.

"Við Messi kynntumst aðeins fyrir HM. Við erum svipaðar týpur utan vallar, frekar feimnir og náum vel saman," sagði Pastore sem hefur margoft spilað Playstation við Messi.

"Ég get sagt ykkur það að ég hef aldrei tapað fyrir Messi í Playstation."

Pastore stefnir á að spila áfram með Palermo á næstu leiktíð en ef tilboðunum rignir inn næsta sumar mun félagið líklega selja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×