Innlent

Vill skoða niðurskurðarlistann

MAgnús Orri schram
MAgnús Orri schram

Frekar en að fara í skattahækkanir á að skoða hugmyndir ríkisstjórnarinnar um mögulegan niðurskurð í ríkiskerfinu, segir þingmaður Samfylkingar, Magnús Orri Schram.

„Ég held að á einhverjum tímapunkti verðum við komin of langt í skattahækkunum og förum að missa frá okkur fjármuni með þeim," segir hann.

Magnús nefnir sérstaklega tekjuskatt fyrirtækja, fjármagnstekjuskatt og auðlegðargjald. Jafnvel hafi verið gengið of langt með hækkun áfengisgjalds líka.

„Ég vil frekar skera niður til dæmis í stjórnarráðinu og á vettvangi háskólanna. Það er hægt að gera betur á flestum sviðum ríkiskerfisins. Ég hef séð ýmsar hugmyndir frá ríkisstjórninni um hvar á að skera niður. Ég vil fara frekar í þann lista," segir hann.

Þingmaðurinn vill þó ekki upplýsa um innihald þessa lista frekar. „Menn eru að velta þessu fyrir sér og ræða á pólitískum vettvangi hvað beri að taka af þessum lista," segir hann. Haft var eftir Magnúsi Orra á RÚV á sunnudag að honum væri skapi næst að lýsa því yfir að hann væri hættur að styðja ríkisstjórnina, en það væri lýðskrum að gera það. Með þessu var hann að „vísa til þess að í sumar hótuðu þingmenn VG að hætta að styðja stjórnina út af Magma-málinu. Það eru vinnubrögð sem mér hugnast ekki og ég er alls ekki hættur að styðja ríkisstjórnina."- kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×