Körfubolti

Flugvél með NBA-liðinu Miami Heat innanborðs þurfti að nauðlenda

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwyane Wade var í stuði í nótt og dansaði meðal annars upp á ritaraborðinu.
Dwyane Wade var í stuði í nótt og dansaði meðal annars upp á ritaraborðinu. Mynd/AP
Liðsmenn NBA-liðsins Miami Heat lentu í óskemmtilegri lífsreynslu í nótt á leiðinni heim frá 97-84 sigurleik á móti Minnesota Timberwolves. Starfsmaður vélarinnar missti þá meðvitund og af þeim sökum varð að nauðlenda vélinni á O'Hare International Airport í Chicago.

Maðurinn lenti í sykursýkisdái og huguðu sjúkraþjálfarar liðsins að honum á meðan að flugvélin var í loftinu. Hann var síðan fluttur á næsta sjúkrahús en er núna búinn að ná sér.

„Við skulum öll biðja fyrir flugmanninum. Hann er í dái. Guð blessi hann og hans fjölskyldu," skrifaði Dwayne Wade, aðalstjarna Miami Heat liðsins, á Twitter-síðuna sína.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×