Fótbolti

Toure: Ég er ekki að hugsa um að yfirgefa Barcelona

Ómar Þorgeirsson skrifar
Yaya Toure.
Yaya Toure. Nordic photos/AFP

Miðjumaðurinn Yaya Toure hjá Barcelona hefur þvertekið fyrir þær sögusagnir um að hann sé óánægður á Nývangi að hann vilji yfirgefa herbúðir félagsins.

Toure hefur verið sterklega orðaður við ensku úrvalsdeildarfélögin Arsenal og Manchester City en hann kveðst hins vegar ekki vera á förum þrátt fyrir að fá minn spiltíma á þessu tímabili en oft áður.

„Það er ekkert félag sem er betra að vera hjá en Barcelona og ég er ánægður þar sem ég er. Ég er ekki að hugsa um að yfirgefa félagið. Ég virði ákvarðanir knattspyrnustjórans og hann veit alveg hvað hann er að gera og styður alltaf vel við bakið á manni.

Ég er búinn að vinna marga titla með Barcelona og ég vill bæta fleirum í safnið," sagði Toure í viðtali við El Mundo Deportivo.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×