Fótbolti

Real Madrid á eftir 18 ára strák hjá Racing Santander

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio Canales er einn efnilegasti leikmaður Spánar.
Sergio Canales er einn efnilegasti leikmaður Spánar. Mynd/AFP
Sergio Canales, hefur slegið í gegn með Racing Santander í spænsku úrvalsdeildinni í vetur og nú vill stórliðið Real Madrid endilega kaupa þennan átján ára strák sem skoraði meðal annars tvö mörk á móti Sevilla um síðustu helgi.

Spænska blaðið Marca segir að Real Madrid ætli sér að kaupa upp samning Canales hjá Racing Santander en þá þurfa þeir að greiða í kringum tíu milljónir evra. Racing er reyndar enn að semja við strákinn og er í viðræðum við bæði föður hans, Gelo Canales, og umboðsmann hans, Natasha Vergara.

Jorge Valdano, íþróttamálastjóri Real Madrid, virðist samkvæmt heimildum Marca, vera búinn að tryggja sínu félagi forkaupsrétt á Sergio Canales. Canales er búinn að skora 4 mörk í 7 leikjum með Racing Santander í þessu tímabili en hann kemur upp úr unglingastarfi félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×