Innlent

Eitur mælist í mjólk vegna sorpbrennslu

Reykmengun frá Funa Á sumrin hefur fjörðurinn ítrekað fyllst af illþefjandi reyk.mynd/Halldór Sveinbjörnsson
Reykmengun frá Funa Á sumrin hefur fjörðurinn ítrekað fyllst af illþefjandi reyk.mynd/Halldór Sveinbjörnsson

Mengun frá sorpbrennslustöðinni Funa á Ísafirði varð til þess að mjólk frá lögbýli í nágrenni stöðvarinnar var innkölluð og framleiðsla stöðvuð að kröfu Matvælastofnunar (MAST). Bæjaryfirvöld á Ísafirði hafa ákveðið að sorpbrennslu í stöðinni verði hætt en mengaðan reyk hefur lagt frá sorpbrennslunni árum saman.

Fyrir rúmri viku greindust þrávirk aðskotaefni yfir leyfilegum mörkum í mjólkursýni frá bæ í Engidal í Skutulsfirði, sem er í næsta nágrenni við sorpbrennslustöðina Funa. Af öryggisástæðum var vinnsla mjólkur á bænum og dreifing afurða sem rekja mátti þangað stöðvuð. Mjólkin frá bænum nemur þremur prósentum hjá MS á Ísafirði og því talið nær útilokað að efnin hafi verið yfir leyfilegum mörkum í framleiðsluvörum stöðvarinnar sem allar eru seldar vestra. Aðskotaefni í mjólk eru talin einskorðast við þennan eina bæ.

Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður matvælaöryggis- og neytendamála hjá MAST, segir að framleiðsla mjólkur á bænum geti ekki hafist að nýju fyrr en líða tekur á janúar, eða þegar niðurstöður sýnatöku berast að utan. Efnin sem mældust í mjólkinni voru meðal annars díoxín sem myndast við bruna.

„Það er þekkt að ef bruni við sorpbrennslu er ekki við nægilega hátt hitastig myndast þessi efni. Væntanlega er þetta loftborin mengun. Hún gæti hafa farið í drykkjarvatn en líklegra er að hún hafi borist í fóður,“ segir Sigurður.

Sorpbrennslustöðin hefur lengi verið til óþurftar og í bréfi Vernharðs Jósefssonar, stöðvarstjóra Funa, til bæjaryfirvalda sumarið 2009 kemur fram að þá hafi mælitæki verið úr sér gengin, engu nauðsynlegu viðhaldi hafi verið sinnt og vinnuaðstæður orðnar starfsmönnum hættulegar.

Í sumar sendi Umhverfisstofnun Ísafjarðarbæ áminningu vegna starfsemi sorpbrennslustöðvarinnar. Þá sýndu mælingar að í reyknum voru efni hátt yfir viðmiðunarmörkum.

Sínk mældist rúmlega 24 sinnum meira en starfsleyfi stöðvarinnar heimilaði, díoxín sextán sinnum meira og þungmálmar fimmfalt meiri.

Bæjaryfirvöld á Ísafirði hafa haft sorpmál til skoðunar á árinu. Flutningur sorps og förgun var boðinn út í haust og viðræður við lægstbjóðanda standa yfir.

svavar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×