Innlent

Sver af sér kynferðislega áreitni

Lögreglustöðin Maðurinn gaf sig fram á sunnudaginn.
Lögreglustöðin Maðurinn gaf sig fram á sunnudaginn.

Karlmaður hefur gefið sig fram við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eftir að fjölmiðlar fjölluðu um mann sem átti að hafa sýnt börnum ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugarneshverfi í Reykjavík síðastliðinn föstudag.

Lýsingin sem gefin var gat átt við þann sem gaf sig fram en hann sór af sér atburðarás sem átti að hafa gerst og lögregla sá ekki ástæðu til frekari afskipta af honum.

Maðurinn gaf sig fram á sunnudag. Hann hafði verið á svæðinu þar sem áreitið var sagt hafa átt sér stað á föstudag. Tveir drengir báru að orðaskipti hefðu átt sér stað milli þeirra og mannsins, sem hefði gert þeim tilboð á kynferðislegum nótum. Hann kannaðist ekki við slíkt þegar hann gaf sig fram hjá lögreglu.

Lögregla telur hugsanlegt að einhver misskilningur hafi verið á ferðinni, en orð stendur gegn orði, drengjanna annars vegar og mannsins hins vegar, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Málið er því enn til rannsóknar.

Lögregla gerði mikla leit að meintum barnaníðingi á föstudaginn, eftir að tilkynningin hafði borist.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×