Fótbolti

Mourinho ekki par sáttur við að Ramos fór á punktinn

Elvar Geir Magnússon skrifar

Jose Mourinho er vanur því að taka út leikbönn en hann var í áhorfendastúkunni þegar Real Madrid vann 5-1 sigur á Athletic Bilbao í gær.

Þegar forysta Real var aðeins eitt mark fékk liðið dæmda vítaspyrnu. Öllum að óvörum var það varnarmaðurinn Sergio Ramos sem stillti boltanum upp.

Cristiano Ronaldo er vítaskytta liðsins en Ramos bað hann um að fá að taka þessa spyrnu þar sem hann væri með það sterklega á tilfinningunni að hann myndi skora.

Mourinho var ekki skemmt yfir þessari ákvörðun en gat lítið gert úr stúkunni. Sem betur fer fyrir Ramos skoraði hann úr spyrnunni. Yfirritaður vill ekki hugsa þá hugsun til enda hvað Mourinho hefði annars gert.

Smelltu hér til að sjá myndband af viðbrögðum Mourinho.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×