Fótbolti

Nistelrooy ekki spenntur fyrir Galatasaray

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Hollendingurinn Ruud Van Nistelrooy er ekki enn búinn að finna sér nýtt félag en Real Madrid hefur afþakkað frekari þjónustu framherjans.

Hann hefur verið orðaður við fjölda félaga á Englandi og þess utan vill tyrkneska liðið Galatasaray fá hann í sínar raðir.

Nistelrooy er ekki spenntur fyrir Tyrklandi eftir því sem umboðsmaður hans segir.

Það bendir því flest til þess að hann endi á Englandi en á meðal þeirra liða sem orðuð eru við hann þar eru Liverpool, Tottenham og Stoke City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×