Körfubolti

Arenas vill endurbyggja traustið við unglingana í Washington

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Byssubrandurinn Gilbert Arenas, leikmaður Washington Wizards í NBA-deildinni, skrifaði sögu sem birt var á vefútgáfu Washington Post í morgun.

Þar er Arenas fullur iðrunar og segist vilja endurbyggja það traust sem hann hafði náð við unglingana í höfuðborginni.

Arenas og félagi hans, Javier Crittendon, voru í síðustu viku dæmdir í bann út leiktíðina fyrir að hafa rifið upp byssur í búningsklefa Wizards. Arenas hefur þess utan játað sig sekan fyrir framan dómara um að koma með fjórar byssur í búningsklefann.

Svo er bara að bíða og sjá hvernig Arenas ætlar sér að endurbyggja traustið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×