Fótbolti

Messi býst ekki við því að spila fyrir Mourinho

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi skorar hér í síðasta leik Barcelona.
Lionel Messi skorar hér í síðasta leik Barcelona. Mynd/AP
Lionel Messi, leikmaður Barcelona og af mörgum talinn besti fótboltamaður í heimi, efast um að hann spili nokkurn tímann fyrir Jose Mourinho, núverandi þjálfara Real Madrid.

„Það væri mjög erfitt fyrir Mourinho að koma til Barcelona því ef hann kæmi hingað þá þyrfti hann að tala allt öðruvísi," sagði Lionel Messi í viðtali við Mundo Deportivo.

„Ég hef ekkert á móti Mourinho og þeir sem vinna með honum bera honum góða söguna. Ég myndi ekki vera með nein vandræði en ég held bara að ég spili aldrei fyrir hann," sagði Messi.

Messi hefur aldrei skorað mark á móti liði sem hefur verið þjálfað af Jose Mourinho en stefnir á að breyta því þegar liðið mætast í El Clasico eftir ellefu daga.

„Ég hef ekki náð að skora hingað til en vonandi breytist það í þessum leik. Ég myndi samt ekki skora markið hjá Mourinho heldur hjá Real Madrid," sagði Messi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×