Fótbolti

Skilaboð Ronaldo til Barca: Reynið bara að skora átta á móti Real

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo leikur sér með boltann í gær.
Cristiano Ronaldo leikur sér með boltann í gær. Mynd/AP
Cristiano Ronaldo hafði ekki miklar áhyggjur af því þótt að Barcelona hafi skorað átta mörk í gær í síðasta leik sínum fyrir El Clasico á móti Real Madrid sem fram fer á mánudaginn eftir rúma viku. Ronaldo skoraði sjálfur þrennu í 5-1 sigri Real á Athletic Bilbao.

„Þessi 8-0 sigur þeirra segir mér ekkert," sagði Cristiano Ronaldo eftir leikinn í gær. „Við skulum bara sjá til hvort þeir geta skorað átta mörk á móti okkur á mánudaginn," sagði Ronaldo sem er búinn að skora fjórtán deildarmörk á tímabilinu eða einu meira en Lionel Messi hjá Barcelona.

„Ég er ánægður með að hafa skorað þrennu en það mikilvægasta var að liðið vann leikinn. Ég er að berjast um að vinna deildina og markakóngstitilinn skiptir ekki miklu máli fyrir mig," sagði Ronaldo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×