Fótbolti

Cristiano Ronaldo orðinn pabbi

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Cristiano Ronaldo er orðinn pabbi.
Cristiano Ronaldo er orðinn pabbi.
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, er orðinn faðir en hann birti yfirlýsingu á Facebook síðu sinni í morgun þar sem hann sagði lítinn dreng hafa komið í heiminn.

Þessi dýrasti knattpyrnumaður heims eignaðist drenginn í júní og talið er að móðir barnsins sé bandarísk. Móðirin vill njóta leyndar og verður Ronaldo einn með forræðið. Samkvæmt nýbakaða pabbanum verða engar nánari upplýsingar gefnar um móðurina.

Ronaldo er vinsæll í slúðurblöðunum og hefur verið orðaður við konur á borð við Kim Kardashian og Paris Hilton. Hvorug þeirra er þó barnsmóðir hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×