Innlent

Álagningin á bensín eykst milli mánaða

Runólfur Ólafsson
Runólfur Ólafsson

Lítraverð á eldsneyti nálgast 200 krónur í fyrsta sinn síðan í sumar. Verð nánast það sama um allt land. Álagning olíufyrirtækjanna á bensínlítrann ekki meiri síðan í vor. Skattar nema rúmum helmingi af útsöluverði bensíns.

Útsöluverð á eldsneyti hefur hækkað nokkuð á undanförnum vikum og er nú komið rétt upp undir 200 krónur á lítrann. Nánast sama verð er á útsölustöðum um allt land. Samkvæmt vefnum bensinverd.is var ódýrast að kaupa hjá Orkunni, þar sem lítrinn kostaði 198,3 á öllum stöðvum, en dýrast var að versla við Shell þar sem lítrinn var á 199,9 krónur. Þess má geta að bæði félögin eru í eigu Skeljungs hf.

Þrátt fyrir verðhækkunina er ekki að sjá að hana sé að rekja til hærra innkaupaverðs á bensíni. Samkvæmt tölum frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), sem reiknar verðið út frá verðlagi og gengi Bandaríkjadals á hverjum tíma, var innkaupaverð auk opinberra gjalda, það sem af er nóvembermánuði, 167,3 krónur og meðalverð á sama tíma var 197,6 krónur.

Miðað við þær tölur er álagningin 30,3 krónur, en hún hefur ekki verið hærri frá því í maí þegar hún var 31,7 krónur. Þá hafði álagningin ekki verið hærri frá því í febrúar 2009.

Útsöluverð hefur hækkað um rúman þriðjung frá ársbyrjun 2009, en hluti af því er mikil stígandi í skattheimtu ríkisins.

Samkvæmt tölum FÍB hafa skattar farið úr 76 krónum á lítrann upp í 103, en náðu reyndar hámarki í apríl þegar 105,6 krónur af hverjum lítra, sem þá kostaði 210 krónur, runnu til ríkisins í formi skatta.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir í samtali við Fréttablaðið að þessar tölur bendi til þess að olíufélögin séu að bæta í álagninguna og það vinni upp lækkun á álagningu sem varð í sumar.

„Það kom svolítið fjör á markaðinn í sumar þegar Orkan reið á vaðið og var með sama verð á hverju sölusvæði, sem varð síðar sama verð um allt land. Þá minnkaði líka munurinn sem hafði alltaf verið á sjálfsafgreiðslustöðvum og þjónustustöðvum niður í 30 aura."

Runólfur segir að þetta sé virkilega áhyggjuefni fyrir bifreiðaeigendur hér á landi.

„Við sjáum að lítraverðið er komið upp undir 200 krónur og það er ekki hvetjandi. Svo kemur þetta ofan í fréttir um að enn séu hugmyndir um að setja veggjöld á vegina til og frá Reykjavík, sem við í FÍB erum alfarið á móti."

thorgils@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×