Innlent

Fékk silfur fyrir eldfjallagreiðslu

Ekki í safnið
Ekki í safnið

Katrín Ósk Guðlaugsdóttir, meistaranemi í hárgreiðslu, vann til silfurverðlauna í keppninni Wella Trend Vision sem fram fór í París um helgina. Eyjafjallajökull og Vatnajökull voru Katrínu innblástur en hún atti kappi við hárgreiðslufólk frá 46 þjóðlöndum.

„Við vorum kallaðar „Wonderland“ eða undralandið, hárið þótti svo nýtískulegt,“ segir Katrín.

Wella Trend Vision-keppnin þykir mikilvæg og hefur verið valin viðburður ársins af tískublöðum á borð við Vogue.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×