Innlent

Flug að komast í samt lag

Iceland Express vonast til að flug komist í eðlilegt horf í dag.  Framan af degi má þó búast við einhverjum seinkunum, að fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Reiknað er með að allt flug Iceland Express verði svo komið í samt lag frá Keflavík  í fyrramálið.

 

Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru þó beðnir enn sem fyrr að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×