Fótbolti

Afellay á leið til Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ibrahim Afellay í leik með PSV.
Ibrahim Afellay í leik með PSV. Nordic Photos / Getty Images

Svo virðist sem að Hollendingurinn Ibrahim Afellay sé á leið til Spánarmeistara Barcelona nú í janúar næstkomandi.

Umboðsmaður Afellay segir á heimasíðu umboðsskrifstofu sinnar að Barcelona hafi komist að samkomulagi við PSV Eindhoven um kaupverð á Affelay.

Leikmaðurinn sjálfur á þó enn eftir að semja um kaup og kjör og gangast undir læknisskoðun. Það muni taka einhvern tíma.

Samningur Afellay við PSV rennur út næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×