Körfubolti

NBA: Paul snéri aftur og Hornets skellti Dallas

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Chris Paul spilaði í nótt sinn fyrsta leik fyrir New Orleans Hornets í langan tíma og það var ekki að sökum að spyrja, liðið vann og það örugglega gegn Dallas.

Paul gat þó ekki leikið allan leikinn heldur aðeins í takmarkaðan tíma.

Hann byrjaði leikinn mjög illa og skoraði ekki í fyrstu þrem leikhlutunum og hann viðurkenndi eftir leik að hafa hreinlega skammast sín.

Hann skoraði síðan 11 stig í lokaleikhlutanum og þar af þrjár þriggja stiga körfur. Hornets kom til baka og vann leikinn.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia-Orlando  93-109

NJ Nets-Miami  89-99

Chicago-Houston  98-88

Milwaukee-Atlanta  98-95

Minnesota-Toronto  100-106

New Orleans-Dallas 115-99

Oklahoma-San Antonio  96-99

Utah-Boston  110-97

Sacramento-Memphis  85-102

Golden State-Phoenix  131-133

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×