Innlent

Áætla 768 milljónir í snjóframleiðslutæki

Bláfjöll Vegna snjóleysis hefur suma vetur aðeins verið opið í fimm daga á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins. Mikið fjör var í fyrstu opnun ársins 2010 í Bláfjöllum. Það var 1. mars.Fréttablaðið/Stefán
Bláfjöll Vegna snjóleysis hefur suma vetur aðeins verið opið í fimm daga á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins. Mikið fjör var í fyrstu opnun ársins 2010 í Bláfjöllum. Það var 1. mars.Fréttablaðið/Stefán

„Skíðaíþróttin er ein besta fjölskylduíþrótt sem völ er á,“ segir stjórn Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins sem vill að aðildarsveitarfélögin verji samtals 768 milljónum í snjóframleiðslutæki í Bláfjöll og Skálafelli.

Í erindi stjórnar Skíðavæðanna frá því í júní til sveitarfélaganna tólf sem aðild eiga að skíðasvæðunum kemur fram að unnin hafi verið kostnaðaráætlun sem miðist við að hægt sé að koma snjóframleiðslutækjunum upp í fjórum áföngum. Fyrsti áfangi myndi kosta 263 milljónir króna og fela í sér tæki í Kóngsgili og í byrjendabrekku í Bláfjöllum. Annar áfangi yrði í Skálafelli og kostaði 273 milljónir.

Þriðji áfanginn fæli í sér tæki á suðursvæði Bláfjalla þar sem kostnaður yrði 150 milljónir króna. Lokaáfanginn, á 82 milljónir, yrði í Eldborg í Bláfjöllum.

Diljá Ámundadóttir frá Besta flokknum er fulltrúi Reykjavíkur í stjórn Skíðasvæðanna og nýr formaður stjórnarinnar. Þegar leitað var eftir upplýsingum frá Diljá í gær sagðist hún „að sjálfsögðu“ hafa skoðun á málinu en að hún vildi „síður vilja ræða“ það fyrr en að loknum sínum fyrsta stjórnarfundi eftir helgi.

Stjórn Skíðasvæðanna leggur í erindi sínu áherslu á sveiflur í rekstrinum á síðustu tíu árum.

„Suma vetur hefur verið opið í 120 til 130 daga samtals en aðra aðeins fimm daga,“ segir í bréfi stjórnarinnar sem bendir á að frá því að snjóframleiðsla hófst á skíðasvæði Akureyrar fyrir sex árum hafi gestum fjölgað jafnt og þétt.

Auk þess sem opnunartími skíðasvæðanna myndi aukast til muna er bent á að nýting fastafjármuna yrði betri og reksturinn stöðugri með snjóframleiðslunni.

„Raunsætt er að opna svæðið á tímabilinu 1. til 15. desember ár hvert. Möguleiki er að hafa opið um jólahátíðarnar en á þeim tíma koma margir í fjöllin. Þau hlákutímabil sem koma alltaf á hverju ári munu hafa minni áhrif á opnun og að lokum er tryggt að eiga alltaf nægan snjó um páska,“ segir stjórnin í bréfinu.

Því er beint til sveitarfélaganna að framkvæmdir hefjist sem fyrst. „Eitt vinsælasta fjölskyldusport landsins er í húfi,“ segir stjórnin.

Eftir því sem næst verður komist hefur ekkert sveitarfélaganna tólf afgreitt erindi Skíðasvæðanna. Málið hefur til dæmis verið tekið fyrir í bæjarráði Kópavogs sem ítrekaði fyrri afstöðu um að meiri upplýsingar vanti um uppbygginguna áður en unnt sé að taka afstöðu til málsins. gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×