Fótbolti

Bilbao náði markalausu jafntefli á móti Barcelona á Nývangi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Villa kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik.
David Villa kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik. Mynd/AP
Athletic Bilbao endaði tíu leikja sigurgöngu Barcelona með því að ná markalausu jafntefli á móti spænsku meisturum á Camp Nou í kvöld í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænska Konungsbikarsins. Liðin mætast aftur í Bilbao 5. janúar næstkomandi.

Fernando Llorente, aðalmarkaskorari og stjarna Athletic Bilbao, gat ekki leikið vegna meiðsla og þjálfarinn Joaquin Caparros stillti upp sex manna miðju í leiknum. Leikmenn Barcelona náðu ekki að brjóta varnarmúrinn á bak aftur og bíður því erfiður seinni leikur í Baskalandi.

Lionel Messi og David Villa byrjuðu báðir á bekknum en komu inn á sem varamenn í seinni hálfleik. Það dugði þó ekki til en Barcelona-liðið hafði skorað 29 mörk í síðustu sex deildarleikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×