Innlent

Spuni er vandi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Spuni stjórnmálanna er hinn eiginlegi vandi, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á þingi í gær. Var hann að ræða um það sem hann kallaði endalausa umræðu um einkavæðingu bankanna og þá tilhneigingu að kenna henni um hrunið.

Hrakti hann slíkar kenningar en kvaðst engu að síður leggja til að rannsókn yrði gerð á einkavæðingu bankanna svo koma mætti því máli endanlega út úr umræðunni. Í framhaldi af því væri loksins hægt að fara að tala um pólitík og hvernig bæta megi ástandið í landinu.- bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×