Fótbolti

Þjálfari Atletico Madrid er mjög hrifinn af Gylfa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Spænska blaðið Cadena Ser segir í dag að Quique Sanchez Flores, þjálfari Atletico Madrid, sé mikill aðdáandi Gylfa Þórs sigurðssonar og vilji ólmur fá hann til Madrid frá Hoffenheim.

Samkvæmt fréttinni hafa útsendarar Atletico Madrid verið tíðir gestir á leikjum Hoffenheim til þess að skoða Gylfa.

Gylfi hefur byrjað mjög vel með Hoffenheim í þýska boltanum og skorað fjögur mörk í sjö leikjum.

Hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2014 og hefur klárlega hækkað í verði síðan hann var keyptur frá Reading á 5 milljónir evra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×