Enski boltinn

Lindegaard: Hef ekki rætt við United

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lindegaard í leik með danska landsliðinu.
Lindegaard í leik með danska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
Danski markvörðurinn Anders Lindegaard segir það alrangt að hann sé jafnvel á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United.

Eric Steele, markvarðaþjálfari United, mun hafa mætt á leik með Lindegaard sem leikur með Álasundi í norsku úrvalsdeildinni. Hann hefur einnig varið mark danska landsliðsins í fjarveru Thomas Sörensen með ágætum.

Fjölmiðlar ytra hafa fullyrt að viðræður séu þegar hafnar á milli Álasunds og Manchester United en það segir Lindegaard vera algeran þvætting.

„Þetta kom mér mikið á óvart og ég varð reiður þegar ég las þetta," sagði hann í samtali við danska fjölmiðla. „Ég hef aldrei rætt við Manchester United."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×