Fótbolti

Leikur Osasuna og Barcelona fer fram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Leikur Osasuna og Barcelona fór fram eftir allt saman. Eftir dramatískan dag fór leikurinn af stað 50 mínútum síðar en áætlað var. Börsungar fengu ekki beint fullkominn undirbúning fyrir leikinn og hafa oftar en ekki fengið betri upphitun en í kvöld.

Leikurinn átti að hefjast klukkan 19.00 en Börsungar voru ekki komnir á völlinn fyrr en 19.05. Þá átti eftir að skipta um föt og koma á völlinn. Börsungar vildu alls ekki fresta leiknum og keyrðu á leikstað þar sem það var verkfall hjá flugvallarstarfsmönnum.

Þeir hituðu stutt upp og svo varð að hefja leikinn. Þetta er talsverð áhætta hjá sveinum Pep Guardiola sem eiga í harðri baráttu við Real Madrid á toppi deildarinnar.

Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×