Innlent

Talsverður órói mældist á miðnætti

Eldgosið á Eyjafjallajökli séð frá Vestamanneyjum í gærkvöldi.
Myndina tók Sigríður Högnadóttir.
Eldgosið á Eyjafjallajökli séð frá Vestamanneyjum í gærkvöldi. Myndina tók Sigríður Högnadóttir.

Talsverður órói mældist við eldgosið í Eyjafjallajökli á miðnætti, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Auk þess voru miklar drunur og aukinn kraftur.

Starfsmenn Veðurstofunnar voru í Fljótshlíð með nætursjónauka en sáu þó ekki vel til jökulsins vegna mikillar eldingarvirkni. Upp úr klukkan tvo dró úr óróanum, vatnsflaumur var stöðugur og vatnsmagn í Markarfljóti svipað og áður.

Spáð er vestlægri átt í dag og því má búast við öskufalli í Mýrdal, á Mýrdalssandi og í Skaftártungum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×