Innlent

Braut bein í andliti konu

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði á skilorði, fyrir að slá konu og brjóta bein í andliti hennar. Var honum gert að greiða henni 400 þúsund í skaðabætur.

Atvikið átti sér stað í sumarbústað. Ofbeldismaðurinn gerðist nærgöngull við konur í bústaðnum. Hann reiddist þegar gerðar voru athugasemdir við hegðun hans og sló eina konuna tvívegis í andlitið með krepptum hnefa.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×