Innlent

Söfnunarsími fyrir Pakistan

UNICEF á Íslandi hefur tekið í notkun söfnunarsíma til að afla fjár til stuðnings þeim sem orðið hafa verst úti í flóðunum í Pakistan.

Að minnsta kosti 15 milljónir manna hafi orðið illa úti í flóðunum í Pakistan, um helmingurinn börn, að mati UNICEF.

Símanúmer hjálparsímanna eru 908 1000 fyrir 1.000 króna framlag, 908 3000 fyrir 3.000 króna framlag og 908 5000 fyrir 5.000 króna framlag. Einnig er tekið við framlögum á unicef.is.- pg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×