Fótbolti

Ronaldo: Mourinho er frábær

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Cristiano Ronaldo er gríðarlega ánægður með nýja þjálfarann sinn hjá Real Madrid, José Mourinho.

Madrid hefur farið vel af stað undir stjórn Mourinho. Hefur ekki enn tapað leik og spilar sífellt betur.

"Það eru allir leikmenn afar ánægðir undir stjórn Mourinho. Leikmenn eru hamingjusamari en þeir voru áður. Þegar illa árar líður fólki eðlilega ekki vel en á þessu tímabili gengur allt vel. Ég þakka Guði fyrir hversu vel allt gengur," sagði Ronaldo.

"Mourinho er frábær. Ég er þakklátur fyrir að hann kom hingað. Hann kemur með mikla reynslu og marga titla á bakinu. Það er gott að vinna með honum. Ég hef alltaf sagt að ég vildi spila undir hans stjórn og félagar mínir eru líka ánægðir með hann. Ég vona að við vinnum Meistaradeildina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×