Fótbolti

Real Madrid tapaði óvænt fyrir Athletic Bilbao

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það gekk ekkert upp hjá Real Madrid í kvöld.
Það gekk ekkert upp hjá Real Madrid í kvöld. Mynd/GettyImages

Real Madrid tapaði óvænt fyrir Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og Barcelona getur því náð fimm stiga forskoti með sigri á Sevilla seinna á eftir.

Sigurmark Athletic Bilbao kom strax á þriðju mínútu leiksins og það skoraði Fernando Llorente með skalla eftir sendingu frá Fran Yeste.

Gorka Iraizoz átti frábæran leik í marki Athletic Bilbao en hann varð alls tólf sinnum frá leikmönnum Real Madrid þar af mörgum sinnum úr dauðafærum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×