Fótbolti

Þjálfari Murcia: Eina leiðin til að vinna Real er að leggjast á bæn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Real Madrid hafa farið á kostum í síðustu leikjum.
Leikmenn Real Madrid hafa farið á kostum í síðustu leikjum. Mynd/AP
Inaki Alonso, þjálfari Real Murcia, var á léttu nótunum á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Real Madrid í Konungsbikarnum í kvöld og gerði meðal annars grín að því að eina leiðin til að vinna Real Madrid væri að treysta á æðri máttarvöld.

„Madrid er með rosalegt lið og Mourinho stjórnar þeim fullkomlega. Hann er kennari og ég veit að hann gerir marga leikmenn liðsins að heimsklassa-leikmönnum. Özil er einn þessara manna sem ég hef mikið álit á," sagði Inaki Alonso, þjálfari Real Murcia sem er í spænsku C-deildinni.

Fyrri leikur liðanna fer fram á heimavelli Murcia, Nueva Condomina, í kvöld en seinni leikurinn verður síðan á Santiago Bernabeu. Mesut Özil, Xabi Alonso og Ricardo Carvalho verða hvíldir hjá Real Madrid í leiknum í kvöld.

„Við verðum að spila fullkomnan leik til þess að eiga möguleika. Við verðum síðan til viðbótar að leggjast á bæn því það er nánast ómögulegt að vinna þá en við verðum að reyna. Það er smá möguleiki til staðar af því að þessi leikur er í bikarnum," sagði Alonso.

Jose Moutinho, þjálfari Real Madrid hefur lagt mikla áherslu á að Real Madrid lendi ekki í því sama og í fyrra þegar liðið datt óvænt út fyrir smáliðinu Alcorcón í 32 liða úrslitunum eftir að hafa tapað fyrri leiknum 0-4 á útivelli.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×