Innlent

Rót hrunsins var sala bankanna og óheftur vöxtur

Umbótastarfið langt komið  Jóhanna Sigurðardóttir sagði sína skoðun á skýrslu þingmannanefndarinnar í gær. fréttablaðið/vilhelm
Umbótastarfið langt komið Jóhanna Sigurðardóttir sagði sína skoðun á skýrslu þingmannanefndarinnar í gær. fréttablaðið/vilhelm

Meginástæða hrunsins verður fyrst og fremst rakin til framferðis og stjórnarhátta stjórnenda og aðaleigenda bankanna. En rótina að þessum óförum má hins vegar rekja til einkavæðingar bankanna fram til ársins 2003 og þess óhefta vaxtar sem stjórnvöld og eftirlitsstofnanir létu viðgangast og hvöttu í raun til fram undir það síðasta.

Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í umræðum um skýrslu þingmannanefndarinnar á Alþingi í gær.

Hún sagði það miður að ekki hefði náðst samstaða um það í nefndinni að rannsaka einkavæðingu bankanna en fagnaði á móti yfirlýsingum formanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks frá því á mánudag í þá átt. Kvaðst hún treysta því að breið samstaða náist um slíka rannsókn á þingi.

Jóhanna sagðist ætla að beita sér fyrir því að unnið yrði hratt og vel úr tillögum þingmannanefndarinnar sem lúta að stjórnsýslunni og sagði umbótastarfið raunar þegar komið langt á veg. Nefndi hún að forystuhlutverk forsætisráðuneytisins hefði verið eflt, unnið væri að sameiningu ráðuneyta, sérstakar ráðherranefndir væru að störfum og reglur hefðu verið samdar um undirbúning lagafrumvarpa.

Þá gat hún þess að stjórnsýsluskóli fyrir ráðherra, aðstoðarmenn og starfsmenn Stjórnarráðsins muni hefja störf síðar í mánuðinum. Þar verði meðal annars farið yfir vönduð vinnubrögð, störf ríkisstjórnar, skráningu gagna og almennar reglur stjórnsýslulaga og upplýsingalaga. - bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×