Innlent

Réðust á mann á svölum húss

Tveir karlmenn um tvítugt hafa verið ákærðir fyrir líkamsárás í síðasta mánuði.

Mönnunum er gefið að sök að hafa ráðist á mann á sjötugsaldri á svölum á fjölbýlishúsi á Akureyri eftir að hann hafði gert athugasemdir við hávaða í þeim. Í ákæru segir að annar maðurinn hafi kýlt þann sem ráðist var á í andlitið en hinn sparkað í höfuð hans. Fórnarlambið hlaut talsverða áverka við árásina, bæði sár, mar og bólgur.

Báðir árásarmennirnir eru einnig ákærðir fyrir fíkniefnabrot. - jss








Fleiri fréttir

Sjá meira


×