Körfubolti

Detroit Pistons er ekki að flytja til Las Vegas

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Richard Hamilton, leikmaður Detroit Pistons.
Richard Hamilton, leikmaður Detroit Pistons. Mynd/Getty Images
Forráðamenn Detroit Pistons í NBA-deildinni í körfubolta hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fullvissa stuðningsmenn sína um að félagið verði áfram í Detroit en Pistons-liðið er nú til sölu.

Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að orðrómur komst á kreik um að fjárfestar frá Las Vegas hefðu mikinn áhuga á að kaupa félagið og flytja það til skemmtanahöfuðborg heimsins.

Las Vegas Sun blaðið skrifaði um það á dögunum að aðilar í borginni væru búnir að tryggja sér það með samningi að NBA-lið væri á leiðinni til Las Vegas ef að byggð verður ný körfuboltahöll í borginni.

Detroit Pistons og Sacramento Kings voru bæði orðuð við þennan samning en nú hafa bæði félögin lokað fyrir þann möguleika að þau væru að flytja til Las Vegas.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×